Einu sinni er allt fyrst!

Það má segja að þar síðasta helgi hafi verið rúmlega viðburðarrík. Þegar maður ætlar sér að giftast yndislegri sveita stelpu þarf maður að prufa allt sem þykir eðlilegt í sveitinni en malbiksbörnin fá ekki að upplifa. Þess vegna hikaði ég ekki við að fara á sjómanndagsgleði á Fáskrúðsfirði og upplifa fullt af hlutum í fyrsta skipti.

Megin tilgangur ferðarinnar austur á fyrði var að flytja á Neskaupstað í sumar þar sem Andrea, Hjúkrunarfræðingur BS, mun sinna austfirskum sjúklingum á FSA og ég ætla að vinna áfram yfir internetið sem var sérstaklega lagt til Neskaupstaðar fyrir mig, eða það mætti halda það svo lengi hefur tekið að tengja það.

Hér kemur svo listinn yfir það sem ég gerði í fyrsta skipti þessa helgi:

-Fór í sjómannadagssiglingu í Ljósafellinu sem er annar togari Loðnuvinslunar á Fáskrúðsfirði. Þar sáum við bobbingavindur, smálegar káetur og annað fiskerísdót. Áður en við fórum um borð var svo Hrauni súkkulaðistykki og Appelsíni, í boði Loðnuvinnslunar, samviskusamlega deilt út af útgerðastjóranum honum Kjartani tengdapabba mínum.

Hoffellið

-Fór í kaffi í félagsheimilið Skrúð þar sem voru í boði heimabakaðir brauðréttir, kökur og pönsur svo eitthvað sé nefnt. Ekki má gleima því að drykkjarföng voru í rausnarlegri kanntinum, kaffi, að sjálfsögðu, og fyrir hina sem ekki drekka kaffi var hinn stórgóði og vinnsæli drykkur Egils-þykkni blandaður í vatni. Undir þessum glæsilegu veigum söng svo stúlknakórinn nokkur lög undir píanóleik tónmenntakennarans í kjölfarið kom svo stórbandið Dollugos sem spilaði skemmtileg sjómanna lög en tók svo slagara eins og One með Creed í lokin undir miklum fagnaðar látum mömmum þeirra.

-Fór í heimsókn til tengdaömmu minnar hennar Láru í fyrsta skipti og fékk kaffi og kökur aðeins klukkutíma eftir hitt kaffið. Þar borðuðum við líka ömmukvöldmat, lambakjöt, brúnaðar kartöflur og sósu.


Ég að keyra á krossaranum

-Fór á Þrándarstaði og prufaði mótorkrosshjólið hann Reynis, bróðir hennar Andreu. Mér tókst að keyra á því nokkra hringi án þess að slasa mig en á meðan pabbi hennar Andreu flaug útí móa en hann slapp með skrámur og grasgrænu í buxunum.


Kjartan, tengdarpabbi minn, á krossaranum.

-Flutti inn í lítið dúkkuhús , virðist vera vinnsælasta lýsingin á því, með Andreu og Líf á Neskaupstað. Þannig að mín fyrstu tvö eigin heimili hafa nú verið utan höfuðborgarsvæðisins.

The asphalt kid but the country man - Jakobar

Future rocker

Þegar ég var að röllta á lækjartorgi eftir evrovision um daginn var mér litið á veggina sem hylja húsin sem brunnu við Austurstræti. Veggina hylja myndir af börnum og ef ég man rétt er þetta hluti af listahátíð í Reykjavík. Eftir að hafa gefist upp að leita af einhverju barni sem ég þekkti rak ég augun í einn grjótharðan töffara sem á örugglega eftir að mæta í norðurkjallara eftir u.þ.b. 10 ár og rennsvitna í pittinum.

Jakobar sem svitanði í Norðurkjalla árin 1999-2002

NY street view

Var að setja inn nokkrar myndir frá New York síðan síðasta sumar.

NY street view

Eins og Rage Aganst the machine segja í laginu góða

There’s a mass without roofs
A prison to fill
There’s a country’s soul that reads <b> post no bills</b>
There’s a strike and a line of cops outside of tha mill
There’s a right to obey
And a right to kill

Löggurnar í NY eru löggurnar í mjög skrítnu hlutverki. Þær eru útum allt en gera nákvæmlega ekki neitt. En útaf því að þær eru útum allt gerist ekki neitt og þar af leiðandi gera þær ekki neitt. En ef þær væru ekki útum allt myndi líklega eitthvað gerast og þá þyrftu þær að koma, þannig að það er kannski bara betra að þær séu útum allt og gera ekki neitt og ekkert gerist. Því þá finnst manni allt í lagi að fara að versla um miðnætti á Time Square.

Við röltum um Central Park og löbbuðum í gegnum Strawberry Field þar sem við sáum fullt af hressum hippum við minnismerki um John Lennon.

Andrea að röllta á Times Square í New York.

Thing I saw in NY

Andrea að bíða eftir liftu í stærsta liftusal sem ég hef nokkurn tíman komið í. Aðeins 12 liftur og maður þufti aldrei að bíða þrátt fyrir nokkra tugi hæða með nokkra tugi herbergja á hverri hæð.

Ferlsis styttan séð aftan frá. Mun skemmtilegra sjónarhorn en þetta týpíska.

Anderið í Empire State byggingunni er eins amerískt og hægt er. Tók okkur um klukkutíma að komast upp í gegnum röð - security check - aðra röð - miðasölu - röð - lyftu - röð - security check - röð - lyftu og þá vorum við kominn upp á 86 hæð, sem var alveg frekar töff en samt ekkert stórkostlegt.

Endilega segið ykkar skoðun en mér finnst þetta afskaplega hressandi myndir.

Jakobar the Yankee

Videó hundurinn ekki flugan!

Ég er búin að vera að klippa saman nokkur videó af Líf sem hafa safnast upp síðan við fengum hana. Það er svo ótrúlega gaman að skoða myndir af henni og sjá hvað hún var einu sinni lítil. Þó hún hafi stækkar alveg ótrúlega mikið finnst okkur hún alltaf vera jafn lítil og sæt.


Fyrsta skipti sem Líf fór í bað eftir að við fengum hana í lok Ágúst 2007.

Líf að drekka hvolpamjólk þegar hún var rúmlega 2 mánaða.

Líf að leika sér með derhúfuna mína og ræðst svo að lokum á myndavélina.

To come: Ný videó þar sem hún vælir alveg óurlega.

Jakob Dog Daddy

London, baby London

Nú er ekki nema rúmur mánuður eftir af dvölinni á Akureyri og þá tekur sumarið við á Neskaupstað. En fyrst af öllu erum við Andrea að fara til London um næstu helgi. Sú ferð átti að vera árshátíðarferð í vinnunni minni en hefur snúist uppí að vera ferð á leik Chelsea og Manchester United á Stamford Bridge. Sem verður náttúlega alveg Legend… wait for it!!! ….daaary. Andrea er að verða búin með lokaverkefnið sitt, enda búin að læra alla daga síðan í mars á meðan ég og Líf erum heima að vinna og sofa. Við verðum alltaf jafn ánægð þegar Andrea kemur heim til okkar.

Andrea kom reyndar snemma heim um daginn og þá stukkum við útí bíltúr í sólinni. Það endaði með því að við þrifum bílinn okkar sem var búin að skíta ærlega uppá bak síðustu vikur.

Búin að sk�ta uppá bak

Tónleika myndir

Það eru fjórar hressandi tónleikamyndir sem eru næstar inn á flickr síðuna minni.

Fyrsta myndin er að sjálfsögðu af Andreu á Innipúkanum verslunarmannahelgina 2006 þar sem hún er núna á Norðfirði að vinna á sjúkrahúsinu og ég hitti hana ekki fyrr en á laugardaginn. En við erum svo búin að ákveða að vera saman á Norðfirði í sumar því þessar tæpu tvær vikur eru búnar að vera nógu erfiðar. Ég og Líf reynum að halda hvort öðru félagskap en ef við getum ekki verið án Andreu í tvær vikur þá getum við það ekki í allt sumar.

Næstu tvær voru teknar á Iceland Airwaves 2006. Fyrri myndin er af Amerísku hljómsveitinni We are scientist sem spilaði á Gauknum. Seinni er af Leaves sem spiluðu í Listasafni Reykjavíkur.

Síðasta myndinn var tekin á AT&T Park parkinglot í San Francisco. Eins og ég hef svo oft áður nefnt fórum við Andrea á Rage Against the Machine tónleika síðasta sumar. Þetta voru náttúrulega geggjuðustu tónleikar sem hægt er að fara á og Zack félagi minn stóð rúmlega fyrir sínu. Hann hoppaði eins og brjálaður maður um sviðið en á myndinni var hann rólegur að kyrja einn af sínum heimsþekktu textum.

Jakobar de la Rocka

Around the world

Þrjár nýjar myndir á Flickr, hver úr sinni áttinni. Sú fyrsta var tekin af Mugison þegar hann spilaði í Listasafni Reykjavíkur á Iceland Airwaves 2006. Hann hefur verið uppáhalds tónlistarmaðurinn minn síðustu árin og verður það eflaust í mörg ár í viðbót. Það er ekki hver sem er sem fær að spila og syngja í brúðkaupinu okkar Andreu en við erum þegar búin að fá loforð um það.

Næsta mynd var tekin í Tivolinu í Kaupmannahöfn síðasta sumar. Þar sem Róbert hafði aldrei komið í tívolí áður var dýrari útgáfan tekin og þau systkinin fengu sér risa sleikjóa. Það má ítreka það aftur að þau eru systkini þó að það þurfi eflaust ekki að taka það fram.

Síðustu myndina tók ég svo þegar við Andrea hjóluðum með Bylgju, Erik og Hrefnu frá San Francisco to Sausalito. Rétt eftir að við höfðum hjólað yfir Golden Gate brúnna stoppuðum við og mér var litið upp í hlíðina þar sem ég sá dansandi ský fyrir ofan einmanna tré sem stóð efst á toppi hlíðarinnar. Soldið eins og í ævintýri og eiginlega “had to be there” moment.

Mig langar að lokum að minna þá sem skoða flickr síðuna mína og annara á uppáhalds fídusinn minn. Við hverja mynd er hægt að velja link sem heitir “map” og þá er hægt að sjá nákvæma staðsetningu, á korti sem líkist google maps, hvar myndinn var tekin. Ég er mjög duglegur að setja inn staðsetingar svo endilega tékkið á þessu. Hér er líka hægt að skoða heimskort og sjá hvernig myndirnar dreifast. Tjék’it!

The Sky Captain

Inni myndir

Í skítakulda, snjókomu og 10-15 m/s nennir maður bara að hanga inni og þ.a.l. taka myndir inni.

…hér er svo ein sem tekin var í Central Park, NYC aðeins til að bræða snjóinn. Enda sjóðandi heit stelpa á myndinni.

The Insider

Flickr update

Ég ákvað í gær að byrja uppá nýtt á Flickr síðunni minni. Í staðin fyrir að setja inn 30 myndir af því sama ætla ég að vanda valið og aðeins V.S.O.P.1 myndir fara þar inn. Ég hef mikin áhuga á ljósmyndun og hingað til hefur áherslan verið á magn í stað gæða en núna verða gæðin höfð í leiðarljósi. Ég ætla líka að setja inn nákvæmar upplýsingar um myndirnar eins og merkja inn á googlemaps hvar og hvenæar þær eru teknar og ætli ég skrifi ekki litla sögu í kringum þær líka til að gera þetta skemmtilegra.

Ég ætla að byrja á 4 myndum sem ég tók síðasta sumar. Annarsvegar í Danmörku í maí þegar ég, Andrea og litli bróðir Andreu, Róbert, fórum í heimsókn til Önnu Siggu í Aalborg…

Himmelskibet Colorado River

…og hinsvegar þegar ég og Andrea ferðuðumst 6750km til að fara á Rage Against The Machine tónleika.

Golden Gate Bridge Palace of Fine Arts

Endilega segið hvað ykkur finnst!

The Fotagrafer

1 V.S.O.P. - Vöðvamikil Sérvalin Og Príðisgóð.

Jack Bauer ára gömul!

Andrea ástin mín, hundamóðir mín og unnusta á afmæli í dag og er 24 ára gömul. Til hamingju með dagin elskan mín og njóttu þess að vera jafn gömul og ég í rúmt par af mánuðum.