Þegar ég var að henda inn linkunum á nýju síðuna kíkti ég á allar síðurnar á listanum og setti ekki inn þær síður sem voru dauðar! En á þessu flakki rakst ég á árs gamla færslu frá Bylgju sem fjallaði um slæman mánudag. Þetta var ágætis lesning og ég spáði s.s. ekki meira í það.
Í morgun þegar ég mætti í vinnuna vildi tölvan mín svo ekki starta sér upp, eftir tveggja tíma restart session fór ég með hana til kerfistjórans og um hádegið var mér tilkynnt að netkortið væri bilað og það þyrfti að senda hana í viðgerð! Frábært!!!, hálfur dagur farinn og líklega heill í viðbót því tölvan kemur örugglega ekki fyrr en á morgun.
Það er nokkuð augljóst að Bylgju tókst að koma þessum slæma mánudag sínum yfir á mig eins og Spiderman tókst að koma svarta slíminu yfir á Eddie og ætla ég því að losa mig við það hérna aftur.

Og ef þið sjáið einhvern sem er fáranlega fúll á mánudegi….munum eftir orðum Lawrence í Office Space
Peter Gibbons: Let me ask you something. When you come in on Monday, and you’re not feelin’ real well, does anyone ever say to you, ‘Sounds like someone has a case of the Mondays’?
Lawrence: No. No, man. Shit, no, man. I believe you’d get your ass kicked sayin’ something like that, man.
2 Ummæli
Ummæli RSS TrackBack Identifier URI
Skrá ummæli

Eins gott að þetta leiði ekki til þess að þú þurfir að “…go ahead and come in on saturday…and sunday as well…” því þá áttu að vera hjá mér!!!
Ég eeeeelska þessa mynd -og þessi comment; sounds like someone’s got að case of the mondays…”