Líf í heimsókn

Í gær fékk ég að taka Líf hingað heim í aðlögun. Hún var hjá okkur í 3 tíma og var heldur betur hress. Hún nagaði alla, stökk um gólfið og hvíldi sig inn á milli. Embla kom til að sjá hana og var ekki alveg viss hvort hún þyrði að leika við hana en var [...]

Fjöldskyldan stækkar!

   
Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn í litlu fjölskylduna okkar er lítill black og tan Cavalier hvolpur sem heitir Líf. Hún er dóttir Rómeó og Júlíu. Hún er eini hvolpurinn sem lifði gotið af því það kom drep í fylgjuna hjá mömmu hennar. Það munaði ekki miklu að hún hefði ekki [...]

Steinasafnið og sumarbústaður

Um þar síðustu helgi skellti ég mér austur á Neskaupstað til Andreu. Við tókum annan góðan rúnt þessa helgina og að þessu sinni í suður. Við keyrðum niður í Fáskrúðsfjörð og kíktum á Skrúðinn. Næsti fjörður var Stöðvarfjörður og þar fórum við á steinasafn Petru sem er alveg ótrúlega flott. Síðan borðuðum við á þýskum [...]

Hnitnar auglýsingar

Allir hafa gaman af hnitnum auglýsingum. Hér er stórgóð vefsíða með nokkrum slíkum. Þær eru því miður allar á ensku eða með enskum texta en vonandi hafiði gaman af þeim engu að síður.
Þessar eru í uppáhaldi hjá mér: The march of the emperor, My mom said I could, Bank Thieves.
Jakobar dogdaddy tobe

iPhone

iPhone er eitthvað það svalasta sem komið hefur á markað og frasar eins og “It’s the best thing since napkins” © Leópold hafa fallið síðustu daga. Hér má sjá hvernig framkvæma á hinar ýmsu aðgerðir á tækinu. Það er hægt að hringja, surfa, senda mail, taka myndir og hlusta á tónlist, einnig má geta [...]

Roskilde 2007

Tveir samstarfsfélagar mínir fóru á Roskilde núna um síðustu helgi. Eins og fólk veit var vangefið mikil rigning og myndirnar í blöðunum og sjónvarpi eftir því. Ég er hinsvegar svo sniðugur að sleppa því að fara á Roskilde þriðja hvert ár þegar það er massa mikil rigning. Svo ef ykkur langar á hátíðina í sól [...]

Júlía

Já, þegar maður situr einn heima og bíður eftir að sumarið líði svo ég geti flutt til Akureyrar með ástinni minni verður maður að finna sér eitthvað skemmtilegt til dundurs. Hún Júlía frænka mín hefur verið dugleg að gubba yfir mig allan þegar ég hef verið að leika við hana. Í dag var hinnsvegar mjög [...]

Nobbagellur!

Andrea og vinkonur hennar Baddý og Karó eru að vinna á Neskaupstað í sumar ef það er einhver sem veit það ekki. Til að skemmta landanum hafa þær sett upp myndasíðu. Þar sem Neskaupstaður er staðsettur býsna fjærri stórborgum má segja að ekki sé mikið hægt að gera sér til dundurs. En þær mega eiga [...]

Hressandi myndbönd

Umræða síðustu vikna hefur ásamt öðru innifalið í sér umræðu um þessi myndbönd og þess vegna ákvað ég að henda þeim inn. Þau eru úr ýmsum áttum svo allir ættu að finna eitthvað fyrir sitt hæfi, njótið vel!
Alveg fáranlega stressuð veðurfréttakona sem hefur þó skánað aðeins síðan.
Íslenskur torfærubíll keyrir á vatni í TopGear!
Danir sem skilja [...]

Norðfjörður

Við keyrðum um Norðfirðina á laugardaginn og skoðuðum alla uppáhaldsstaðina hennar Andreu sem eru ótúlega flottir og stundum fannst manni eins og við værum í útlöndum. Á Sunnudeginum en horfðum hinsvegar á videó úr VideóFlugunni . Hér eru nokkrar myndir!

[...]