Hressandi myndbönd

Umræða síðustu vikna hefur ásamt öðru innifalið í sér umræðu um þessi myndbönd og þess vegna ákvað ég að henda þeim inn. Þau eru úr ýmsum áttum svo allir ættu að finna eitthvað fyrir sitt hæfi, njótið vel!

Alveg fáranlega stressuð veðurfréttakona sem hefur þó skánað aðeins síðan.
Íslenskur torfærubíll keyrir á vatni í TopGear!
Danir sem skilja ekki hvorn annan. Þetta er án gríns mikið vandamál í Danmörku. Svipað ef Íslendingar frá mismunandi landshlutum skildu ekki hvorn annan og þá er ég ekki að meina orðanotkun eins og kók í bauk eða að hanga á snerlinum. Þessu er líkt við mismunandi tungumál.

Til að bæta við, þá fór ég í bíó í gær og í dag á Die Hard 4.0 og Evan Almighty. Mæli með þeim báðum! Passið ykkur samt að sjá trailerinn fyrir Evan Almighty ekki áður en þið sjáið myndina þ.e.a.s ef þið eruð ekki enþá búin að sjá hann. John Maclane var síðan ekkert nema töff og sprengdi allt sem hægt var ásamt því að ausa kaldhæðni yfir alla.

3 Ummæli

  1. En hey, vissir þú að ofurstressaða verðurkonan er gift honum Daníel Brandi ;D

  2. Ertu að grínast! Hahahahah… Ég sá hana nú bara einu sinni útum gluggan niðrí Fakta þannig að það er kannski ekki vona að ég hafi ekki þekkt hana. En þetta er alveg helmingi fyndnara núna!!! Hún er svo fáranlega stressuð að það er ekkert venjulegt.

  3. I know.. ég hló líka miklu meira þegar ég vissi þetta !!
    :D


Ummæli RSS TrackBack Identifier URI

Skrá ummæli