Crazy dog…

Líf er ekki eins og aðrir hundar sem borða bara þurrfóður… eða kannski erum við Andrea ekki eins og aðrir hundaeigendur sem gefa hundinum sínum bara þurrfóður. Alveg síðan við fengum hana hefur hún smakkað allskonar sem við höfum verið að borða t.d. snakk, lakkrís, skinku, papriku og umfram allt dýrkar hún að fá soðnar rófur. Þess má geta að hún hefur aldrei fengið niðurgang sem er víst aðal tabú og vandamál þeirra hundaeigenda sem segja að það sé best fyrir hundinn að vera bara á þurrfóðri. En það er ekki best fyrir hundinn heldur auðveldast fyrir eigandann. En á meðan hún hakkar í sig þurrfóður þrátt fyrir allt “smakkið” á  öðru gúmmelaði erum við mjög ánægð.

Núna kemur samt aðal atriðið, þegar Líf fær kjötsúpu verður hún tryllt. Hún hakkar hana í sig, rekur alla í burtu sem koma nálægt henni og hættir ekki fyrr en hún er svo gott sem búin að éta skálina líka. Hér má svo sjá viðbrögðinn hennar þegar Andrea setur köttinn of nálægt henni í miðju kjötsúpuátinu. Takið eftir því að hún lítur ekki einu sinni upp úr skálinni til þess að skamma köttinn.

Það má svo sannarlega segja að við eigum ákveðinn hund sem lætur engan vaða yfir sig. Það verður gaman að sjá hvernig kötturinn og Skotta eiga eftir að höndla að hafa litlu frekjuna heima sjá sér næstu tvær vikurnar.

Jakobar a hombre from Spain in Spain.
Ciao!

No Comments Yet

Engin ummæli enn.

Ummæli RSS TrackBack Identifier URI

Skrá ummæli