Margt smátt gerir fullt af litlu…

Nokkrir áhugaverðir hlutir í mínu lífi síðustu daga og vikur.

Ég setti inn myndir úr dómaferðinni til Spánar á evrópukeppnina í köfubolta á flickr síðuna mína. Þar má t.d. sjá NBA mennina Tony Parker, Boris Diaw, Dirk Nowitzki, Sarunas Jasikevicius, Jose Manuel Calderon, Paul Gasol og Andrei Kirilenko sem var valinn leikmaður mótsins.

Nýji diskurinn með Mugison, Mugiboogie, er kominn út og það er ódýrast að kaupa hann hérna! Þessi diskur er að sjálfsögðu skildu eign eins og allir hinir diskarnir hans.

Ég dæmdi fyrsta leik minn í IcelandExpressdeild kvenna á dögunum, það var viðureign Hauka og KR. Í gær dæmdi ég svo fyrsta leik minn í 1.deild karla, Ármann/Þróttur – Höttur.

Andrea bjó til nýja wordpress síðu um daginn og raðar inn skemmtilegum og áhugaverðum færslum.

Það var keyrt á okkur Andreu í gærkvöldi í hálkunni (Andrea skrifaði tjónaskýrlu um það).

I´m is off to sushi!

Jakobar sushi master!

2 Ummæli

  1. takk fyrir öööönaðslegt sushi elsku Gobbiddígobbiddí! =)

  2. Verði ykkur mæðgum að góðu og verið ávalt velkomnar aftur! Verst að Líf hafi ekki verið heima til að borða allt kexið sem endaði á skemmtilegan hátt í gólfinu.


Ummæli RSS TrackBack Identifier URI

Skrá ummæli