Nokkrar myndir sem ég tók á síman minn. Ég nennti ekki að setja inn myndir úr spánarferðinni strax. Ég þarf að velja úr rúmlega 1000 myndum sem við tókum á viku.
Undanfarið hef ég verið tíður gestur á Leifsstöð og þar hef ég tekið eftir að tölvukerfið hjá þeim er ekki alveg nógu stöðugt. Á fyrri myndinni sem ég tók í Ágúst er windows warning gluggi með kínverskum táknum. Sú seinni er tekinn núna í enda október og þá er kominn er bluescreen á annan skjá. Veit ekki hvort maður á að túlka þetta sem veikleikamerki eða hvað. Alltaf gaman að sjá hrunin kerfi nema þegar maður skirfaði þau sjálfur.
Embla var ekki sú þolinmóðasta þegar ég og Andrea fórum í Mollið svo hún ákvað að leika sér með rauðan borða á gólfinu. Svo fóru Embla og Andrea í skemmtilegan leik í röðinni sem fólst í því að finna sem mest af bleikum fötum inn í búðinni og er skemst frá því að segja að Embla vann.
Andrea reyndi hvað hún gat að finna moll í Alicante á kortinu og eftir að hafa spjallað við spánverja og labbað þónokkurn spöl fundum við fullt af búðum. Þar gerðum við síðustu innkaupin í ferðinni og fengum alveg ótrúlega flotta tösku í kaupbæti í einni snytivörubúðinni sem andrea verslaði í.
No Comments Yet
Engin ummæli enn.
Ummæli RSS TrackBack Identifier URI
Skrá ummæli
