Það hlaut að koma að þessu. Maður er búin að harka í heimi dómgæslunnar í 13 mánuði og aldrei hefur neinn haft áhuga á því að setja mann í sjónvarpið fyrr en nú. Það var síðasta laugardag sem ég var að dæma leik Bikarmeistara Keflavíkur og nýliða Fjölnis í Iceland Express deild kvenna sem upptakan átti sér stað og svo nokkrum tímum seinna birtist hún í íþróttasyrpu aðalfréttatíma sjónvarpsins. Fyrir þá sem ekki hafa séð þetta myndbrot, má horfa á það hérna. Eins og sjá má bregður mér fyrir í þrígang og mun það vera persónulegt met síðan ég sást í lok fréttatíma spila fótbolta í Galtalæk um verslunarmannahelgi fyrir rúmum áratug. Ég hef ákveðið að halda ekki uppá þennan áfanga og afþakka hér með öll blóm og allar gjafir en vil benda velunnurum á að styrkja frekar körfuknattleikshreyfinguna á íslandi.
Jakobar The Ref
1 Comment(s)
Ummæli RSS TrackBack Identifier URI
Skrá ummæli

Ég er bara fegin að þú sért ekki handboltadómari og birtist í fréttunum í fáránlegum stuttbuxum og hnésokkum…:) Þú ert klárlega sætasti körfuboltadómarinn á landinu! :*