Ég er svo ótrúlega sammála Einari Erni og hvet aðra sem standa í hans sporum að gera það sama, einfaldlega treysta fólki. Því einmitt um leið og mér var treyst ákvað ég að endurgjalda traustið og kaupa mér Bloodgroup diskinn á netinu í bestu gæðum og án drm. Næst á eftir munu eflaust fylgja fleiri góð kaup á íslenskri tónlist. Því miður var ég aðeins of seinn að kaupa Mugiboogie á mugison.com því ég frétti af því dagin eftir að ég keypti diskinn í Skífunni að hann væri til sölu á síðunni hans. Ég ætla hinsvegar mjög líklega að kaupa hina diskana sem ég á ekki ennþá sem og myndband af tónleikum hans á Ísafirði.

En aftur að nýjustu tónlistarkaupum mínum Sticky situation með Bloodgroup. Ég ætla ekki að vera með einhverja heilsteypta gagnrýni, því laglausa tóneyrað mitt hefur ekki þroska til þess. Ég ætla bara að segja að mér finnst þetta geggjað! Þetta grúvar fáranlega vel, textarnir eru cool og bæði söngurinn og undirleikurinn er magnaður. Ég veit að það eru allir að segja að þetta sé geggjað band en ég trúði því bara einfaldlega ekki fyrr en að ég hlustaði á diskinn í fyrsta skipti. Þetta er geggjað!
Ég verð hinsvegar að nefna það að Andrea á algjörlega heiðurinn af því að ég sé að hlusta á Bloodgroup eins og reyndar mjög margt annað. Þar má helst nefna Bright Eyes, Foo Fighters, Placebo, The Knife, We Are Scientist og íslensku böndin Jan Mayen og Solid I.V. Það vantar alveg örugglega eitthvað uppá þennan lista enda er hún snillingur í að finna ný og góð bönd. Hinsvegar ætla ég að taka allan heiður af því að stór hljómsveitin Dikta hljómi jafn mikið og raun ber vitni í tækjunum okkar. En saman eigum svo snillingin Mugison, gæti örugglega ekki talið fjölda tónleika sem við höfum farið á með honum á fingrum beggja handa.
The Critic
3 Ummæli
Ummæli RSS TrackBack Identifier URI
Skrá ummæli

Já, mikið er ég fegin að það sé loksins orðið betra að kaupa á netinu, og auðvitað snilldarhugmynd að maður kaupi, fái diskinn strax í tölvuna á stafrænu, og svo diskinn sjálfan sendan með pósti! Svonalagað verður til þess að mann virkilega langar til að kaupa frekar en að láta deila til sín hlutunum
Snilld, snilld segi ég!
Hvað þessa hljómsveitaupptalningu varðar þá finnst mér þú ekki alltaf velja það besta úr safninu mínu til að hlusta á! Ég er bara fegin að þú sért hættur að hlusta á Sálina og börnin okkar þurfi ekki að hringja í Stebba Hilmars til að syngja í jarðarförinni þinni!:)
Já, ég er opinberlega búin að ákeða að láta Sálina ekki spila í jarðarförinni jafnvel þó að vilji svo illa til að þeir verði ekki allir dauðir á undan mér. Þarf að fara að vinna í því að finna aðra góða hljómsveit til að leysa þetta verðuga verkefni!
Hvað ætli Tommi segi um þetta