Þrjár nýjar myndir á Flickr, hver úr sinni áttinni. Sú fyrsta var tekin af Mugison þegar hann spilaði í Listasafni Reykjavíkur á Iceland Airwaves 2006. Hann hefur verið uppáhalds tónlistarmaðurinn minn síðustu árin og verður það eflaust í mörg ár í viðbót. Það er ekki hver sem er sem fær að spila og syngja í brúðkaupinu okkar Andreu en við erum þegar búin að fá loforð um það.
Næsta mynd var tekin í Tivolinu í Kaupmannahöfn síðasta sumar. Þar sem Róbert hafði aldrei komið í tívolí áður var dýrari útgáfan tekin og þau systkinin fengu sér risa sleikjóa. Það má ítreka það aftur að þau eru systkini þó að það þurfi eflaust ekki að taka það fram.
Síðustu myndina tók ég svo þegar við Andrea hjóluðum með Bylgju, Erik og Hrefnu frá San Francisco to Sausalito. Rétt eftir að við höfðum hjólað yfir Golden Gate brúnna stoppuðum við og mér var litið upp í hlíðina þar sem ég sá dansandi ský fyrir ofan einmanna tré sem stóð efst á toppi hlíðarinnar. Soldið eins og í ævintýri og eiginlega “had to be there” moment.
Mig langar að lokum að minna þá sem skoða flickr síðuna mína og annara á uppáhalds fídusinn minn. Við hverja mynd er hægt að velja link sem heitir “map” og þá er hægt að sjá nákvæma staðsetningu, á korti sem líkist google maps, hvar myndinn var tekin. Ég er mjög duglegur að setja inn staðsetingar svo endilega tékkið á þessu. Hér er líka hægt að skoða heimskort og sjá hvernig myndirnar dreifast. Tjék’it!
The Sky Captain
1 Comment(s)
Ummæli RSS TrackBack Identifier URI
Skrá ummæli




Við Róbert erum greinilega með sömu nammisýkisgenin…ég man líka sérstaklega vel eftir þessum sleikjó fyrir að vera það fyrsta sem ég borðaði í marga daga eftir veikindi hérna heima og svo sennilega það eina sem ég borðaði í þessari danmerkurferð fyrir utan barnamaukið hennar Ninju Tíbrár.