Það eru fjórar hressandi tónleikamyndir sem eru næstar inn á flickr síðuna minni.
Fyrsta myndin er að sjálfsögðu af Andreu á Innipúkanum verslunarmannahelgina 2006 þar sem hún er núna á Norðfirði að vinna á sjúkrahúsinu og ég hitti hana ekki fyrr en á laugardaginn. En við erum svo búin að ákveða að vera saman á Norðfirði í sumar því þessar tæpu tvær vikur eru búnar að vera nógu erfiðar. Ég og Líf reynum að halda hvort öðru félagskap en ef við getum ekki verið án Andreu í tvær vikur þá getum við það ekki í allt sumar.
Næstu tvær voru teknar á Iceland Airwaves 2006. Fyrri myndin er af Amerísku hljómsveitinni We are scientist sem spilaði á Gauknum. Seinni er af Leaves sem spiluðu í Listasafni Reykjavíkur.
Síðasta myndinn var tekin á AT&T Park parkinglot í San Francisco. Eins og ég hef svo oft áður nefnt fórum við Andrea á Rage Against the Machine tónleika síðasta sumar. Þetta voru náttúrulega geggjuðustu tónleikar sem hægt er að fara á og Zack félagi minn stóð rúmlega fyrir sínu. Hann hoppaði eins og brjálaður maður um sviðið en á myndinni var hann rólegur að kyrja einn af sínum heimsþekktu textum.
Jakobar de la Rocka
No Comments Yet
Engin ummæli enn.
Ummæli RSS TrackBack Identifier URI
Skrá ummæli




