Það má segja að þar síðasta helgi hafi verið rúmlega viðburðarrík. Þegar maður ætlar sér að giftast yndislegri sveita stelpu þarf maður að prufa allt sem þykir eðlilegt í sveitinni en malbiksbörnin fá ekki að upplifa. Þess vegna hikaði ég ekki við að fara á sjómanndagsgleði á Fáskrúðsfirði og upplifa fullt af hlutum í fyrsta skipti.
Megin tilgangur ferðarinnar austur á fyrði var að flytja á Neskaupstað í sumar þar sem Andrea, Hjúkrunarfræðingur BS, mun sinna austfirskum sjúklingum á FSA og ég ætla að vinna áfram yfir internetið sem var sérstaklega lagt til Neskaupstaðar fyrir mig, eða það mætti halda það svo lengi hefur tekið að tengja það.
Hér kemur svo listinn yfir það sem ég gerði í fyrsta skipti þessa helgi:
-Fór í sjómannadagssiglingu í Ljósafellinu sem er annar togari Loðnuvinslunar á Fáskrúðsfirði. Þar sáum við bobbingavindur, smálegar káetur og annað fiskerísdót. Áður en við fórum um borð var svo Hrauni súkkulaðistykki og Appelsíni, í boði Loðnuvinnslunar, samviskusamlega deilt út af útgerðastjóranum honum Kjartani tengdapabba mínum.
-Fór í kaffi í félagsheimilið Skrúð þar sem voru í boði heimabakaðir brauðréttir, kökur og pönsur svo eitthvað sé nefnt. Ekki má gleima því að drykkjarföng voru í rausnarlegri kanntinum, kaffi, að sjálfsögðu, og fyrir hina sem ekki drekka kaffi var hinn stórgóði og vinnsæli drykkur Egils-þykkni blandaður í vatni. Undir þessum glæsilegu veigum söng svo stúlknakórinn nokkur lög undir píanóleik tónmenntakennarans í kjölfarið kom svo stórbandið Dollugos sem spilaði skemmtileg sjómanna lög en tók svo slagara eins og One með Creed í lokin undir miklum fagnaðar látum mömmum þeirra.
-Fór í heimsókn til tengdaömmu minnar hennar Láru í fyrsta skipti og fékk kaffi og kökur aðeins klukkutíma eftir hitt kaffið. Þar borðuðum við líka ömmukvöldmat, lambakjöt, brúnaðar kartöflur og sósu.
Ég að keyra á krossaranum
-Fór á Þrándarstaði og prufaði mótorkrosshjólið hann Reynis, bróðir hennar Andreu. Mér tókst að keyra á því nokkra hringi án þess að slasa mig en á meðan pabbi hennar Andreu flaug útí móa en hann slapp með skrámur og grasgrænu í buxunum.

Kjartan, tengdarpabbi minn, á krossaranum.
-Flutti inn í lítið dúkkuhús , virðist vera vinnsælasta lýsingin á því, með Andreu og Líf á Neskaupstað. Þannig að mín fyrstu tvö eigin heimili hafa nú verið utan höfuðborgarsvæðisins.
The asphalt kid but the country man – Jakobar
4 Ummæli
Ummæli RSS TrackBack Identifier URI
Skrá ummæli


haha, Andrea var um það bil að kafna úr hlátri þegar ég var að tala við hana í símann þegar þú varst að spreyta þig á hjólinu!
En já EKKERT jafnast á við sjómannadagshelgi á austurlandinu!
Bið að heilsa ykkur! Verðið þið nokkuð í bænum helgina 28 júní? Ég á afmæli þá og Björk og Sigur-Rós eru með tónleika.
kv.
-L
Kafna úr hlátri?!?!?!… Ég man ekki betur en þetta hafi heldurbetur kveikt í henni og henni hafi fundist ég alveg grjótharður og töff. Það mun ekki líða á löngu áður en ég fjárfesti í álíka tryllitæki
haha – þá er ég heldur betur til í að prófa! =)
..eins gott að þið verðið nágrannar mínir!