Hámenning/lágmenning

Í gær upplifði ég skemmtilegar andstæður sem minntu mig á flottar auglýsingar, frá HSBC bankanum, sem ég sá í London. Á meðan ég horfði á Bachelor, mestu lágmenningu allra tíma, fletti ég í gegnum hnausþykka bók sem innihélt mikla hámenningu þ.e. öll meistaraverk Jóhannesar S. Kjarvals.

Sitt sýnist hverjum!
Menningarsinninn

Með Thule auglýsing á svölunum

Einhver virðist hafa skilið eftir tvo Thule-bjóra úti á svölum hjá okkur um síðustu helgi. Þeir eru búnir að standa þar síðan og undanfarna daga hefur snjóað í kringum þá.
Eins og sjá má er þetta farið að líta út eins og hin girnilegasta Thule auglýsing. Eigandin hefur nokkra daga til að vitja bjórsins en eftir [...]

Á topp 20!

-Eigiði eitthvað þungarokk hérna?
-Jájá, við erum með eitt særsta þungarokksafn landsins.
-Jæja, þá ætla ég að fá plötuna Mega með Megalouf.
-Fyrirgefðu, hvað sagðiru?
-Platan Mega með Megalouf!!! Ég trúi því ekki að þú kannist ekki við það?
-Aldrei heyrt á það minnst.
-Heyrðu, nú er mér öllum lokið.
-Þú spyrð bara um einhverjar hljómsveitir sem engin hefur heyrt minnst á.
-Engin [...]